Lögmenn Suðurlandi



  
Götuheiti
Svæði
Stærð til
Verð frá
Herb.
Einbýli Fjölbýli
Hæðir Par/rað
Nýbygg. Atvinnuh.
Sumarhús Bújarðir
Spildur Hesthús
Fyrirtækið >

Upphaf Lögmanna Suðurlandi má rekja aftur til ársins 1990.  Í upphafi var eingöngu um rekstur lögfræðistofu að ræða en í maí 1991 hófst rekstur fasteignasölu samhliða rekstri lögfræðistofunnar. Starfsemin var á þessum tíma til húsa að Austurvegi 38 Selfossi, fyrst einungis í einu skrifstofuherbergi á efstu hæð hússins, og einungis með einu og hálfu stöðugildi.  Samhliða opnun fasteignasölunnar var starfsemin flutt á miðhæð sama húss í talsvert rýmra húsnæði og við það fjölgaði starfsmönnum úr tveimur í fjóra.  Í ársbyrjun 1993 var starfsemi Lögmanna Suðurlandi flutt að Austurvegi 3 á Selfossi og fjölgaði starfsmönnum í samræmi við aukin verkefni.  Þessi fyrstu ár félagsins var starfsemin í leiguhúsnæði en það var svo árið 1995 að Lögmenn Suðurlandi eignuðust eigið húsnæði að Austurvegi 3 þar sem starfsemin er enn til húsa.  Í dag eru starfsmenn Lögmanna Suðurlandi 10 talsins.
 
Starfsemi okkar skiptist í tvær megindeildir, lögfræðiþjónustu, og fasteignasölu.

Lögmenn Suðurlandi hafa starfrækt  Innheimtuþjónustu, sem rekin er undir nafninu Sjóður innheimtuþjónusta.

Lögmenn Suðurlandi þjónusta ýmis fyrirtæki og einstaklinga. Meðal viðskiptavina okkar eru Landsbanki Íslands, Sparisjóður Suðurlands, Íbúðalánasjóður, Atvinnuþróunarsjóður Suðurlands, Kjörís hf., Sveitarfélagið Árborg, Sveitarfélagið Ölfus, Grímsnes- og Grafningshreppur, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Rangárþing eystra og Eignarhaldsfélag Suðurlands.

Almennar upplýsingar um fyrirtækið

Nafn: Lögmenn Suðurlandi ehf.
Kt. 571292-3009
Heimilisfang: Austurvegi 3, 800 Selfossi
Póstfang: Pósthólf 140, 802 Selfoss
Netfang: selfoss@log.is
Sími: 480 2900
Fax: 482 2801
Vsknr.: 36401
Banki LÍ: 152-26-101292

Eigendur: 
Ólafur Björnsson hæstaréttarlögmaður og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali 
Sigurður Sigurjónsson hæstaréttarlögmaður og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali

Lögmenn Suðurlandi ehf. er einkahlutafélag og er skráð sem slíkt hjá hlutafélagaskrá.

Lögmenn Suðurlandi ehf. er í Félagi fasteignasala.

Helstu lög og reglur um lögmenn

Lögmannalög nr. 77/1998
Samþykktir fyrir Lögmannafélag Íslands
Siðareglur fyrir Lögmannafélag Íslands
Siðareglur CCBE
Reglugerð nr. 200/1999, um starfsábyrgðartryggingar lögmanna
Reglugerð nr. 201/1999, um fjárvörslureikninga lögmanna o.fl.

Helstu lög og reglur um fasteigna- fyrirtækja- og skipasala

Lög um fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu
Hlutverk og skyldur fasteignasala



www.aicon.is