Lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands vorið 1987. Starfaði sem lögfræðingur á skrifstofu Borgarstjóra í tæp tvö ár, var síðan með lögfræðiskrifstofu í Reykjavík í tvö ár. Árið 1991 stofnaði hann Lögmenn Suðurlandi og hefur rekið það ásamt Sigurði Sigurjónssyni hrl frá 1993. Öðlaðist réttindi til málflutnings í héraði árið 1990. Öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti árið 1998. Löggiltur fasteigna- og skipasali frá 2001.